Icelandic Lean Institute is rated 3 out of 5 in the category management consulting. Read and write reviews about Icelandic Lean Institute. Icelandic Lean Institute (ILI) er faglegur vettvangur þar sem Íslendingar geta sótt sér fróðleik, ráðgjöf og innblástur varðandi straumlínustjórnun í öllum sínum myndum. ILI er hluti af Lean Global Network sem er yfirbygging Lean samtaka í 30 löndum um allan heim. Frumkvöðlarnir Dan Jones og Jim Womack höfundar bókarinnar Lean Thinking voru upphafsmenn LEA í Bretlandi og LEI í Bandaríkjunum og síðan þá hefur þetta vaxið hægt og þétt og núna er Ísland komið í hópinn! Tilgangur ILI er að setja alvöru kraft í þróun Lean hugsunar á Íslandi. ILI einsetur sér að styðja, efla og hjálpa þeim sem eru að vinna með Lean aðferðir ásamt því að kynna Lean fyrir þeim sem ekki þekkja aðferðafræðina. Stofnandi er Pétur Arason eigandi Manino og samstarfsaðilar við stofnun ILI eru Ásdís Kristinsdóttir og Margrét Edda Ragnarsdóttir hjá Gemba ráðgjöf, Guðmundur Ingi Þorsteinsson hjá Lean ráðgjöf og Maríanna Magnúsdóttir. Starfsemi ILI mun m.a. fela í sér námskeiðahald, vinnustofur, ráðstefnur, ráðgjöf og ýmiskonar Lean pælingar. Endilega fylgist með okkur - við hlökkum til að taka þátt í þinni vegferð!
Company size
1-10 employees
Headquarters
Kópavogur, Capital Region