Hagvangur

  • Trustfeed ratings Icon
  • Trustfeed ratings Icon
  • Trustfeed ratings Icon
  • Trustfeed ratings Icon
  • Trustfeed ratings Icon

Reykjavík, Iceland

hagvangur.is
Human Resources

Hagvangur Reviews | Rating 3 out of 5 stars (5 reviews)

Hagvangur is rated 3 out of 5 in the category human resources. Read and write reviews about Hagvangur. Fyrirtækið Hagvangur var stofnað árið 1971 og er eitt elsta ráðgjafarfyrirtæki landsins. Í fyrstu starfaði fyrirtækið á sviði rekstrarráðgjafar. Síðar varð fyrirtækið ekki síður þekkt fyrir skoðanakannanir og ráðningarþjónustu, en upphaf ráðningarþjónustunnar má rekja til ársins 1976. Árið 1998 sameinaðist fyrirtækið Endurskoðunarmiðstöðinni Coopers & Lybrand og var þá tekið upp nafnið PricewaterhouseCoopers. Um áramótin 2002/2003 urðu aftur þáttaskil þegar sú starfsemi sem tilheyrði ráðningarþjónustunni var seld til núverandi eigenda, Katrínar S. Óladóttur, núverandi framkvæmdastjóra og Þóris Á. Þorvarðarsonar, stjórnarformanns og ráðningarstjóra fyrirtækisins. Frá árinu 2005 hefur fyrirtækið markvisst víkkað starfsvið sitt og nær ráðgjöf fyrirtækisins nú yfir vel flest svið mannauðsstjórnunar. Fyrirtækið sérhæfir sig þó enn í faglegum ráðningum, hönnun og innleiðingu ráðningarferla og mælingum. Árið 2006 gerði Hagvangur samning við hið virta bandaríska rannsókna- og prófafyrirtæki Hogan Assessment Systems og er dreifingaraðili þess á Íslandi. Það tengist þeirri sýn Hagvangs að vera fremsta og faglegasta fyrirtæki á Íslandi í starfsmannatengdri ráðgjöf og rannsóknum. Árið 2007 gerðist Hagvangur aðili að EMA Partners International að undangengnu ströngu mati á okkar vinnubrögðum, þekkingu á vinnumarkaðnum og áreiðanleika. EMA Partners International, stofnað 1988, eru ein af stærstu samtökum ráðningarfyrirtækja i heiminum með 50 skrifstofur í 37 löndum og yfir 200 sérhæfða ráðgjafa á sínum vegum. EMA Partners International sérhæfa sig í stjórnendaráðningum en þær ráðningar ganga oftast undir nafninu ,,hausaveiðar"​ (headhunting). Með þessu samstarfi opnast nýir möguleikar fyrir viðskiptavini okkar hvað varðar aðstoð Hagvangs við leit að stjórnendum víðs vegar í heiminum því tengslanet og þekking sérfræðinga EMA er um allan heim.

Address

Skógarhlíð 12

Company size

11-50 employees

Headquarters

Reykjavík

Founded

1971

Open hours

...
There is no reviews yet about Hagvangur, be the first to write a review and give your rating to Hagvangur
Write review Claim Profile