Wise lausnir ehf. is rated 3 out of 5 in the category computer software. Read and write reviews about Wise lausnir ehf.. Wise er einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics NAV bókhalds- og viðskiptahugbúnaðinum á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga. Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins. Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Lausnir Wise eru í notkun hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins. Wise hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir starfsemi sína sína þ.á.m. viðurkenninguna „Samstarfsaðili ársins“ hjá Microsoft á Íslandi og Fyrirmyndarfyrirtæki VR um nokkurra ára skeið. Wise sérhæfir sig í bókhalds- og viðskiptahugbúnaði fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Þekktustu vörutegundir þess eru NAV í áskrift, Wise Analyzer greiningartól, Wisefish sjávarútvegslausnirnar, sveitarfélagalausnir og fjöldi viðskiptalausna sem eru í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum víðs vegar um heiminn. Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu. Starfsemin byggir á hugbúnaðargerð en jafnframt er þjónustan við viðskiptavinahópinn mjög mikilvæg. Hjá Wise starfa 80 manns, 34 á hugbúnaðar- og tæknisviði, 32 í þjónustu og ráðgjöf, 5 á fjármálasviði, 5 í sölu- og markaðssetningu og 4 erlendis.
Company size
51-200 employees