Ræktunarsamband Flóa og Skeiða is rated 3 out of 5 in the category oil & energy. Read and write reviews about Ræktunarsamband Flóa og Skeiða. Fyrirtækið var upphaflega sett á legg sem samvinnufélag þann 22. janúar árið 1946 og telst því í dag vera eitt elsta verktakafyrirtæki á landinu. Að stofnuninni komu bændur í fimm hreppum á því svæði sem í dag telst til Flóa og Skeiða, en hér var nánar tiltekið um að ræða einskonar samruna búnaðar-félaga sveitanna undir merki eins ræktunarsambands. Gaulverjabæjarhreppur Hraungerðishreppur Sandvíkurhreppur Skeiðahreppur Villingaholtshreppur Síðar meir bættust Eyrabakka- og Stokkseyrarhreppur við. Af þessu má ætla að samvinnuhugsjónin hafi verið helsti drifkraftur sambandsins frá upphafi. Félagið var síðast einn öflugasti jarðvinnuverktaki á heimasvæði sínu og byggði upp öfluga bordeild. Verkefnin sem félagið hefur komið að eru fjölmörg og stór. Árin 2008-2014 voru félaginu þung en í kjölfar efnahagshruns á landinu breyttist staðan á einni nóttu. Á árinu 2014 lauk alsherjar endurskipulagning á rekstrinum. Jarðvinnudeildin var seld frá og starfar nú undir merkjum Borgarverks. Áhersla Ræktunarsambandsins verður héðan í frá jarðboranir og sér félagið nú fram á bjarta tíma eftir umbreytingarsöm ár. Jarðboranir keyptu allt hlutafé í Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða fyrripart ársins 2015 en þar sameinast miklir kraftar og þekking á þessu sérsviði.
Company size
11-50 employees
Headquarters
Selfoss, Árborg