Nordic IT Consulting is rated 3 out of 5 in the category information technology and services. Read and write reviews about Nordic IT Consulting. Nordic IT Consulting sérhæfir sig í ráðgjöf í upplýsingatækni. Upplýsingatækni er mjög stór þáttur í rekstri fyrirtækja og stofnana og snertir beint eða óbeint flesta liði í daglegum rekstri. Í umhverfi þar sem stjórnendur takast á við stöðugar áskoranir um að bæta þjónustu og auka samkeppnishæfni er mikilvægt að skipulag upplýsingatæknimála sé skilvirkt og styðji við stefnu og framtíðarsýn. Við skiljum mikilvægi þess að nýta þau tækifæri sem tæknileg framþróun skapar til að ná samkeppnisforskoti og hagræða en gerum okkur jafnframt grein fyrir þeim áskorunum sem þeim fylgir og ábyrgð stjórnenda að stýra áhættu í rekstri. Við erum ekki endursöluaðilar á vél- eða hugbúnaði annarra birgja, ráðgjöf okkar er óháð og tekur eingöngu mið af þörfum viðskiptavina. Við aðstoðum fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög við að hámarka virði og árangur í rekstri upplýsingakerfa. Þjónusta okkar byggir á viðurkenndri og þróaðri aðferðafræði og njótum stuðnings annarra innlendra og erlendra ráðgjafa og sérfræðinga þegar kemur að flóknum úrlausnarefnum. Þjónustuframboð Nordic IT Consulting er meðal annars: -Verkefnastjórnun í upplýsingatækni -UT stefnumótun -Útvistun upplýsingakerfa -Rekstrarhagræðing í upplýsingatækni -Aðstoð við þarfagreiningu og val á upplýsingakerfum -Samningagerð og leyfismál -Breytingastjórnun og uppfærslur -Aðgangsöryggi og gagnaöryggi -Bestun viðskiptaferla -Úttektir upplýsingakerfa og upplýsingatækniumhverfis Nordic IT Consulting ehf. Hlíðarsmára 2 201 Kópavogur Tel: +354 8404306 e-mail:
[email protected] kt: 580214-1260 vsk nr: 116156
Company size
1-10 employees
Headquarters
Reykjavík, Kópavogur